Fréttir

Geir Ólafsson í Moskvu

Geir Ólafsson söng í Moskvu í vikunni við góðar undirtektir. Einnig notaði hannn tækifærið og sótti söngtíma hjá einum þekktasta söngkennara Moskvu í vikulokin. Hann er væntanlegur aftur til landsins mánudaginn 2. desember. Geir mun fara á vegum Zonet á MIDEM, kaupstefnu tónlistarinnar, sem haldin er árlega í janúarmánuði í Cannes í Suður-Frakklandi.

KK & Maggi á Hótel Borg og í uppsveitum Árnessýslu um verslunarmannahelgina

KK & Maggi Eiríks hafa að undanförnu verið á tónleikafeðalagi í samvinnu við Zonet og Rás 2 um landið og fylgt eftir nýútkominni plötu sinni “Langferðalög”, einni af mest seldu plötum sumarsins. Þeim hefur allstaðar  verið firnavel tekið, hvarvetna er húsfyllir og mikil stemming hefur myndast. Þeir félagar krydda flutninginn með skemmtilegum frásögnum í kringum login og fellur það vel í kramið hjá áheyrendum.

KK & Maggi Eiríks- Langferðalög

Langferðalögin 22 sem nú eru á leiðinni til landsins voru flestöll sungin inn í upptökuveri austur í Kína síðastliðinn vetur og þótti okkur því sjálfsagt að kalla diskinn “Langferðalög”.  Þetta er þriðja “ferðalagaplata” okkar félaganna og inniheldur mörg af ástsælustu sönglögum síðusutu áratuga í einföldum og alþýðlegum útsetningum. Eins og á fyrri ferðalagaplötunum eru allir textar og gítargrip í bæklingnum sem fylgir diskinum. Góða skemmtun og gleðilegt sumar!  

Kraftmiklir í Kína

Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar & Jóels Pálssonar er nýkominn frá Kína, þar sem kvatrtettnum var boðið að leika á áttundu alþjóðlegu listahátíðinni í Shanghai. Ferð þeirra tókst með miklum ágætum. Þeir léku fyrir fullu húsi ánægðra jazzunnenda í Shanghai í hinni stórglæsilegu 1800 manna konserthöll í hjarta borgarinnar á torgi alþýðunnar (People´s Square) í fyrstu viku listahátíðarinnar.

Björn Thoroddsen í Lincoln Center

Birni Thoroddsen hefur ásamt hljómsveit sinni Cold Front, verið boðið að leika í Lincoln Center í New York 2.október n.k.. Björn Thoroddsen og Cold Front voru valdir úr hópi fjölmargra kanditata, sem á ári hverju koma til álita að leika í hinnu virtu tónleikahöll.

Komnir heim frá Japan

Velheppnaðri tóleikaferð Guitar Islancio til Japan er lokið. Húsfyllir var á öllum tónleikunum og hvarvetna gerður góður rómur að leik þeirra. Alljos Music útgefandi GI í Japan annaðist alla skipulagningu ásamt Japan Iceland Society.

Guitar Islancio til Japan

Félagarnir Björn Thooddsen, Gunnar Þórðarson og Jón Rafnsson í Guitar Islancio eru á leið til Japan, þar sem tríóið mun halda þrenna tónleika í þessari viku.

Enn frekari útrás

Kínverskir útgefendur og hljómleikahaldarar halda áfram að sýna íslenskum listamönnum gífurlegan áhuga. Undirbúningur er hafinn að þátttöku íslenskra listamanna á listahátíðinni í Shanghai í haust. Ennfremur eru útgáfufyrirtæki í Shanghai að hugleiða útgáfu og hljómleikaferð íslenskra listamanna í vor á vegum Zonet.

Viljayfirlýsing undirrituð

Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing milli Zonet og forsvarsmanna listahátíðar í Kína um þátttöku íslenskra listamanna á 8. listahátíðinni í Shanghai 2006

Óttar Felix ávarpaði Kaupstefnuna í Shanghai

Í tengslum við listahátíðina í Shanghai er samhliða haldin tónlistar kaupstefna. Skipuleggjendur listahátíðar báðu Óttar Felix Hauksson fyrir hönd Zonet útgáfunnar að flytja ávarp á kaupstefnunni að þessu sinni. sjá nánar.

KK bandið í Kína

Sl. haust samdi Zonet við kínversku Listahátíðina í Sjanghæ um að íslensk hljómsveit léki á hátíðinni. KK bandið fór og stóu sig vel eins og þeirra var von og vísa. Sérstaka hrifningu vaxti saxófónleikur Sigurðar Flosasonar og í framhaldi ritaði Óttar Felix Hauksson undir viljayfrirlýsingu að koma aftur að ári með hljómsveit á listahátíð með hljómsveit sem hefði saxófónleikara innanborðs!

Góður árangur á MIDEM

Ferð Zonet útgáfunar á MIDEM kaupstefnuna var einkar vel heppnuð. Góður árangur í fyrra plægði akurinn fyrir enn frekari árangur á þessari kaupstefnu.

7200 íslensk topplög seld - Það þýðir gull!

Geisladiskurinn 12 íslensk topplög með Á móti sól hefur verið seldur í heildsölu í um 6000 eintökum.

Danir falla fyrir Robertino

Robertino - De allre størst hits sem Zonet útgáfan gaf út í Danmörku fyrir stuttu fór beint í 9. sætið á opinbera danska sölulistanum (Den officielle danske hitliste). Núna í jólamánuðinum er Robertino aftur kominn á lista. Diskurinn er í 9. sæti sölulista FDB.

Glitra gullin ský fær lofsamlega dóma

Glitra gullin ský hefur fengið góðar viðtökur frá því hún kom út.  Þeir félagar fengu síðan mjög góða dóma í Morgunblaðinu þann 24. nóvember sl. Þar segir (lesa dóm)

Fræbbblarnir fá góða dóma!

Dót, nýjasti diskur Fræbbblanna, fékk frábæra dóma í Morgunblaðinu þann 2. desember sl. og í DV sama dag. Fréttablaðið gaf disknum síðan bestu meðmæli 8. desember.

Gullið blasir við

Á móti sól stefnir hraðbyr í gullsölu. Fyrsta upplagið af 12 íslenskum topplögum seldist upp í síðustu viku og annað upplag fór í dreifingu þann 14. desember. Það er ljóst diskurinn fellur landsmönnum til sjávar og sveitar einkar vel í geð.   

Juxtapos fær frábæra dóma

Juxtapos með Búdrýgindi fékk frábæra dóma í Morgunblaðinu þriðjudaginn 7. desember 2004. Platan fær 4 stjörnur af 5 mögulegum og hælir gagnrýnandinn sveitinni fyrir ferskleika og hljóðfæraleik.

Mannakorn tilnefndir

Betra en best með Mannakornum fékk tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum hljómplata ársins. Zonet útgáfan óskar þeim félögum Magnúsi og Pálma til hamingju með tilnefninguna.

Robertino ánægður með land og þjóð

Stórsöngvarinn Robertino hafði í nógu að snúast þá 4 daga sem hann dvaldi á Íslandi. Hann áritaði nýja diskinn sinn í Hagkaupum og Bókabúð Máls og menningar.

Hljómarnir árita

Hljómarnir árita nýjá diskinn sinn á eftirfarandi stöðum um helgina: Bókabúð Máls og menningar í Mjódd á laugardaginn kl. 13 og í nýrri verslun Pennans - Eymundssonar í Hallarmúla kl. 14.

Miðasala í Bókabúð MM

Miðasala á tónleika Robertino hefst í Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18 og á midi.is mánudaginn 8. nóvember kl. 9. Smelltu hér til að kaupa miða

Pino Marcucci

Nú styttist óðum í tónleika Robertino í Austurbæ. Miðasala hefur gengið vel og er ljóst að eftirvænting er í loftinu fyrir þessa fyrstu hljómleika Robertino á Íslandi í yfir 40 ár!

Robertino snýr aftur!

Austurbær kynnir með stolti tónleika ítalska snillingsins Robertino í Austurbæ miðvikudaginn 1. desember n.k. Það verður blásið til sannkallaðrar ítalskrar veislu og hvergi til sparað.

Enn til miðar á The Fall

Miðvikudaginn 17. nóvember heldur breska hljómsveitin The Fall tónleika í Austurbæ. Um upphitun sjá hljómsveitirnar Dr. Gunni og Vonbrigði. Miðaverð er 3200 kr. og er miðasala í fullum gangi á midi.is og í Austurbæ.

Vel heppnaðir tónleikar!

Tónleikar Lisu Ekdahl í Austurbæ, föstudaginn 29. október og laugardaginn 30. október, tókust frábærlega! Tónleikagestir stóðu upp og hylltu Lisu og hljómsveit í lokin og mátti sjá marga gesti með tárvotar kinnar.

Guitar Islancio á Japansmarkað

Zonet útgáfan hefur gert leyfissamning á 3 plötum Guitar Islancio í Japan. Það er fyrirtækið Allios music í Yokohama sem verður hinn japanski útgefandi.

Alasnoaxis í Austurbæ

Þriðjudaginn 2. nóvember n.k. spilar hljómsveitin AlasNoAxis í Austurbæ. Stórsveit Nixnoltes hitar upp. Tónlist Alasnoaxis er kannski best skilgreind sem jazz skotin spunamúsík með pönk- rokkáhrifum. Hljóðfæraleikur þeirra sem þarna koma fram getur varla flokkast undir neitt annað en tæra snilld. Miðasala er í 12 Tónum og á midi.is.  

Miðasala á The Fall

Miðasala á tónleika The Fall í Austurbæ þann 17. nóvember n.k. hófst föstudaginn 15. október kl. 10 á midi.is og í Austurbæ. Miðaverð er 3200 kr. Miðasala er jöfn og góð.

Uppselt á aukatónleika!

Það tók ekki nema 3 klst. að selja alla miðana á aukatónleika Lisu Ekdahl í Austurbæ þann 29. október!

Vinningshafi í ferðapotti

Þann 28. september var dreginn út vinningshafi í Ferðapotti Zonet útgáfunnar og Iceland express. Vinningshafinn að þessu sinni er Arnar Freyr Einarsson og fær hann að launum ferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar eða London með Iceland express. Við óskum Arnari til hamingju!

Miðasala á Lisu Ekdahl

Miðasala á tónleika Lisu Ekdahl hefst föstudaginn 1. október kl. 9 í Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg og á midi.is. Miðaverð er 3900 kr. Tónleikarnir verða haldnir í Austurbæ 30. október kl. 20.30.

Góðir hljómleikar

Blonde Redhead spilaði fyrir fullu húsi í tvígang í Austurbæ sl. helgi. Það var samróma álit flestra sem mættu að hér hafi farið eitt almagnaðasta hljómleikaband sem sótt hefur landann heim. Upphitunarböndin, kombó Skúla Sverrissonar og Slowblow þóttu einnig hafa sýnt hreint frábæra takta.

Geir Harðarson - Landnám

Út er kominn geisladiskurinn Landnám með Geir Harðarsyni. Landnám er fyrsti geisladiskur Skagamannsins Geirs Harðarsonar og þvílík frumraun!  

Frábærir dómar!

Tónleikar Grafík og Harðar Torfasonar í Austurbæ tókust frábærlega. Hljómur og umgjörð var með ágætum og listamennirnir í fantastuði. Í Morgunblaðinu 13. september birtist dómur um tónleika Grafík þar sem Austurbær fær lofsamlega umfjöllun...

Aukatónleikar!

Miðasala á aukatónleika Blonde Redhead í Austurbæ þann 20. september er hafinn á midi.is og í 12 Tónum. Fyrir þá sem ekki þekkja Blonde Redhead má benda á að smella hér.

Hausttónleikar Harðar Torfa

Hörður Torfason heldur árlega haustónleika sína í Austurbæ þann 10. september n.k. Miðasala er hafin á midi.is og í Austurbæ. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21.00.

Blonde redhead í Austurbæ!

Hin framsækna New York sveit Blonde redhead er á leiðinni í Austurbæ! Sveitin mun halda þar tónleika ásamt Skúla Sverrissyni bassaleikara sunnudaginn 19. september. Miðasala hefst 1. september á midi.is og í 12 tónum.

Mannakorn verða á Kringlukránni í lok ágúst

Í tilefni af útkomu Betra en best heldur Mannakorn í víking og mun spila á tónleikum og fyrir dansi víðsvegar um landið í sumar. Föstudagskvöldið 27. ágúst og laugardagskvöldið 28. ágúst verða þeir félagar á Kringlukránni í Reykjavík.

Grafík með tónleika

Hin ástsæla hljómsveit Grafík heldur tónleika Austurbæ þann 9. september n.k. Miðasala hefst þann 4. september. Allar nánari upplýsingar á concert.is. 

Hárið fyrir fullu húsi

Söngleikurinn Hárið hefur gengið fyrir fullu húsi í Austurbæ frá frumsýningu í byrjun júlí. Sýningin er kraftmikil, fersk og umfram allt skemmtileg. Hægt er að nálgast miða hér.

Zonet útgáfan lækkar verðið!

Það eru góðar fréttir sem við færum unnendum íslenskrar tónlistar. Zonet útgáfan hefur tekið ákvörðun um að lækka verðið á geisladiskum niður í 1.999 kr.

Miðasala hafin á Hárið

Miðasala á söngleikinn Hárið sem frumsýndur verður í Austurbæ þann 9. júlí n.k. er hafin á netinu. Hægt er að nálgast miða hér.

Upp með húmorinn!

Hljómar eru um þessar mundir í hljóðveri að taka upp nýjan hljómdisk sem stefnt er að komi út í byrjun október. Lokið var við eitt þessara laga Upp með húmorinn þann 25. maí sl. og er það nú komið í spilun á útvarpsstöðvum.

Guitar Islancio til Kína

Á fundi sem Óttar Felix Hauksson hélt með forráðamönnum hinnar árlegu Kínversku listhátíðar i Shanghai,  í tengslum við undirritun útgáfusamnings Robertino, var afráðið að bjóða Guitar Islancio að leika á listahátíðinni í október og efna til hljómleikaferðar um Kína árið 2005.  

Robertino afhent gull!

Roberto Loreti, öðru nafni Robertino, fékk afhenta gullplötu í Róm fyrir skömmu. Það var eigandi Zonet útgáfunnar Óttar Felix Hauksson sem færði þessum gullbarka plötuna. Á myndinni frá vinstri: Óttar Felix, Robertino og Pino Marcucci King of Italian melody. 

Frábærir tónleikar í Austurbæ

Í tilefni af útgáfu Scandinavian songs voru haldnir sérstakir útgáfutónleikar með Guitar Islancio í Austurbæ, fimmtudagskvöldið 13. maí. Góð mæting var og góður rómur gerður af leik tríósins.  

Sumarútgáfur

Á næstu vikum koma út nokkrar frábærar plötur frá Zonet útgáfunni. Fyrst í röðinni er fjórða geislaplata Guitar Islancio og hefur hún fengið nafnið Scandinavian songs. Áætlaður útgáfudagur er 15. maí. 

Hárið í Austurbæ

Rokksöngleikurinn Hárið verður settur upp í Austurbæ í sumar. Frumsýning er fyrirhuguð 1. júlí og hafa söng-, leik- og dansprufur farið fram og er búið að manna öll hlutverk. Æfingar munu hefjast í Austurbæ í maí.

30 milljónir fyrir einn geisladisk!

Gunnar Þórðarson keypti nýverið geisladisk fyrir 30 milljónir. Hér er um að ræða eitt hæsta verð sem einstaklingur hefur greitt fyrir stakan geisladisk.     

Skyttur og Dáðadrengir á Grand Rokk

Ekkert kjaftæði - bara stuð verður á Grand Rokk miðvikudaginn 7. apríl. Þar leiða saman hesta sína gleðisveitirnar Skytturnar og Dáðadrengir.

Skytturnar hita upp fyrir Sugarbabes

Skytturnar hafa verið valdar til þess að hita upp fyrir hið magnaða stúlknaband Sugarbabes í Laugardalshöllinni þann 8. apríl næstkomandi. Það er næsta víst að mikið stuð verður í Höllinni þetta kvöld!   

Vinningshafi

Dreginn hefur verið út vinningshafinn úr árlegum ferðapotti Sonet. Vinningshafinn er Edda Ingvadóttir Básbryggju 51 í Reykjavík. Hún hlýtur að launum ferð fyrir 2 til Kaupmannahafnar eða London, með Iceland express, ásamt gistingu í tvær nætur. Starfsfólk Sonet óskar Eddu til hamingju.

Velheppnaðar útgáfur!

Það er óhætt að segja að þeir titlar sem Sonet gaf út á árinu sem leið hafi gengið vel. Dómar hafa verið lofsamlegir og landsmenn hafa svo sannarlega verið á sama máli og gagnrýnendur. KK/Maggi með 22-Ferðalög, sem gagnrýnandi kallaði þjóðargersemi, er söluhæsta plata ársins án nokkurs vafa. Hefur hún selst í yfir 15.000 eintökum!Fréttir af öðrum titlum hér.

Austurbær lifir!

Þrátt fyrir ótímabærar fréttir af andláti þessa merka húss er það enn í fullri notkun. 5. stelpur.com hefur gengið fyrir fullu húsi á annan mánuð og söngvakeppnir, tónleikar og aðrar leiksýningar eru vikulegir viðburðir.

Robertino goes east

Zonet music has made a deal with Intercont music of Romania for Robertino, The Golden years, in that territory. This Italian prodigy certainly took Midem in Cannes by storm!

A meeting with a Prince

Óttar Felix Hauksson the managing director of Zonet music met Prince Joachim of Denmark at Midem in Cannes. Joachim is, as his brother Frederik, a music lover and a regular guest at rock concerts in Denmark. 

2003 was a huge success!

Last year was a huge success in the Zonet Music history. Our titles where sold in thousands and three of them hit gold and one hit platinum! KK/Maggi sold over 15.000, Robertino 7.000 - still going strong - and Hljómar just over 9.000. Guitar Islancio also hit gold this year!

Björn Thoroddsen - awarded

Björn Thoroddsen was awarded the "jazz performer of the year" at the Icelandic music awards 2003.

Zonet music at Midem

Zonet music will be represented at Midem in Cannes this year. Óttar Felix Hauksson managing director will be attending Midem. Zonet music is located at the Icelandic stand, R34.13 in The Escape Riveria.

Maður ársins!

Ómar Ragnarsson var á gamlársdag valinn maður ársins 2003 af hlustendum Rásar tvö. Ómar er svo sannarlega vel að þessum titli kominn fyrir óþrjótandi ást og virðingu á landi og þjóð.

Á toppnum!

Tónlistinn eins og hann er í 52. viku ársins er enn ein skrautfjöðrin fyrir Sonet útgáfuna. Á toppnum trónir Robertino með plötuna Það allra besta!

Skytturnar falla í kramið!

Það er óhætt að segja að Skytturnar komi vel út úr ársuppgjöri tónlistargagnrýnenda. Árni Matthíasson hjá Morgunblaðinu setur Illgresið í 2. sætið yfir bestu plötur ársins. Meira hér.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár!

Starfsfólk Sonet óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.

Robertino kominn í gull!

Robertino, ítalska undrabarnið hefur svo sannarlega slegið í gegn. Í dag, aðeins 15 dögum frá útgáfudegi, hafa selst yfir 6000 eintök af geislaplötunni - Það allra besta. Það þýðir að útgáfan hefur náð gullsölu þremur dögum fyrir jól. Fyrsta upplag er á þrotum en annað upplag er komið til landsins. Það stefnir allt í að platan verði uppseld hjá útgefanda fyrir jólin!

Listamenn árita

Listamenn Sonet verða á ferð og flugi um helgina við áritanir og spilamennsku. Ómar Ragnarsson byrjar í Japis við Laugaveg í dag 18. desember kl. 17. Á morgun 19. desember fara Hljómar og Ómar á Akranes og í Borgarnes þar sem þeir munu taka lagið og árita. Þeir verða í Hljómsýn á Akranesi kl. 15.00 og á Hyrnutorginu í Borgarnesi kl. 16.00. Um að gera að ná sér í eiginhandaráritun hjá þessum meisturum!

Vel heppnuð aðventuhátíð

Fimmtudaginn 18. desember var haldin aðventuhátíð fyrir eldri borgara í Austurbæ. Fyrirtækin Sonet, SBA-Norðurleið, Ölgerð Egils Skallagrímssonar og Nói-Síríus buðu til þessarar skemmtunar ásamt listamönnunum sem allir gáfu vinnu sína. Hátíðin tókst einkar vel og þótti t.a.m. Ómar Ragnarsson fara á kostum þar sem hann tók hið marfræga Sveitaball ásamt þeim KK og Magga Eiríks.

Björn tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna!

Jørgen Svare og Björn Thoroddsen gerðu það gott þegar tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna voru kynntar. Jazz airs þeirra félaga fékk tvær tilnefningar í flokki Jazztónlistar, sem plata ársins og Björn Thoroddsen sem flytjandi ársins. Þess ber að geta að tríóið fékk lofsamlega dóma í nýjasta tölublaði Jazz specail. Aðrar tilnefningar má sjá hér.

Skytturnar með bestu plötu ársins!

Biggi úr Maus lét þess getið í Fréttablaðinu fyrir skömmu að Illgresið væri líklega besta íslenska platan þetta árið! Það er því alveg ljóst að frumraun þessarar frábæru hljómsveitar verður í samantekt poppspekúlanta á því besta þegar árið verður gert upp. En hólið heldur áfram..  

Forgotten lores og Skytturnar á túr

Föstudaginn 12. desember koma Skytturnar til tónleikahalds í Reykjavík. Þeir spila á Gauk á Stöng þá um kvöldið ásamt Forgotten lores. Fjörið hefst kl. 22. Fyrr um daginn koma sömu bönd fram í verslun Japis við Laugaveg.

Frábærir dómar!

Far plata Chosen ground fær frábæra dóma í Fréttablaðinu þann 10. desember. Freyr Bjarnason hefur m.a. þetta að segja um plötuna: Svöl tónlistin helst vel út alla plötuna og virkar hún án efa ágætlega á dansgólfinu. [...]Niðurstaðan er fín plata og vönduð sem væri kjörin til að ná upp góðri stemningu við réttar aðstæður.

Tilnefning til íslensku tónlistarverðlaunanna!

Le Grand Tango er tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir hljómplötu sína Tango í flokknum Ýmis tónlist. Til hamingju! Sjá tilnefningar hér.

Hátíðartónleikar í Glerárkirkju

Í tilefni af útgáfu hljómdisksins Áfram veginn, með karlakórnum Heimi, verða haldnir sérstakir hátíðartónleikar í Glerárkirkju föstudaginn 5. desember nk. kl. 20.30. Þar mun kórinn syngja margar af perlum íslenskra og erlendra sönglaga.

Skyttur á tökustað

Norður á Akureyri hömuðust Skytturnar um helgina við gerð myndbands við lagið Lognið á undan storminum, sem heyrst hefur á öldum ljósvakans að undanförnu. Hér má sjá mynd af drengjunum á tökustað. Það er Geimstofan sem sér um gerð myndbandsins og leikstjóri er Baldvin Z.

Álfar og tröll

Íslensk börn og unglingar hafa eftir því sem árin líða og tæknin tekur meira pláss haft minni og minni kynni af bæði íslenskum þjóðsögum og íslenskum þjóðlögum. Þó er greinilegt að þegar þau komast í kynni við þessar gersemar íslenskrar menningar er ekki vöntun á áhuga, sér í lagi þegar um álfa og tröll er að ræða.  

Samstarfssamningur RÚV og Sonet

Þriðjudaginn 25. nóvember sl. skrifuðu Sonet og Ríkisútvarpið undir samstarfssamning um útgáfu á tónlistarefni úr safni RÚV (útvarps- og sjónvarpsefni).

KK og Maggi á BSÍ!

Í tilefni af gull- og platínusölu geislaplötunnar 22 ferðalög ætla KK og Maggi Eiríks að bjóða til tónlistarveislu á BSÍ. Veislan verður haldin í hádeginu, á milli kl. 12 og 13,  fimmtudaginn 27. nóvember. Á BSÍ er fyrirtaks veitingasala og það gefst ekki betra tilboð á höfuðborgarsvæðinu þennan dag en að njóta veitinga við undirleik KK og Magga.

Skytturnar gerðu allt brjálað!

Skytturnar héldu um helgina hreint magnaða útgáfutónleika. Þetta voru fyrri útgáfutónleikar þessara geðþekku pilta frá höfuðstaðNorðurlands. Eins og sjá má á myndum frá þessum viðburði var stemmingin mögnuð.

Ómar lands og þjóðar - Aukasýning!

Vegna tæknilegra örðugleika tókst ekki, eins og til stóð, að sýna það myndefni sem er hluti af sýningunni Ómar lands og þjóðar. Sýningunni var þess vegna frestað til dagsins í dag og verður haldin kl. 21. í Austurbæ. Aðgöngumiðar gærdagsins gilda í kvöld. Óseldir miðar verða seldir í miðasölu Austurbæjar frá kl. 19.00. Miðaverð er 1000 kr.   

Guitar Islancio 5 ára og fá gull!

Tríóið Guitar Islancio er 5 ára um þessar mundir og fagna því með gullsölu. Það er einkar athyglisverður árangur sérstaklega þegar horft er til þess að hér er um djassafurð að ræða sem í ofanálag er "instrumental". Frábær árangur! 

Hiphoppið magnað!

Á síðasta ári varð sprenging á hiphoppsenunni á Íslandi. Fjöldi ungra og efnilegra sveita komu fram með misjafnar afurðir eins og gengur. Í ár er það Sonet sem færir landsmönnum helstu hiphoppsveitir landsins og bjarga ugglaust tónlistarjólunum fyrir mörgum 

Hljómar að nálgast 8000 seld eintök!

Hljómar er komnir vel yfir gullplötusölu og nálgast óðfluga platínuplötu. Árangurinn kemur svo sem ekki á óvart því geislaplatan er frábær. Verið er að leggja lokahöndina á vandaðan mynddisk með drengjunum, sem verður frumsýndur í Ríkissjónvarpinu 7. desember n.k. Í kjölfarið verður afurðin gefin út á DVD-diski sem kærkomin viðbót fyrir okkur öll sem fögnuðum Hljómum á þessu mikla afmælisári.

Endurkoma Hljóma átti greinilega fullan rétt á sér!

Útgáfa hinnar nýju breiðskífu þeirra ,,Hljómar" virðist hafa rutt af stað nýju bítlaæði meðal gamalla, sem og nýrra aðdáenda hinnar einu sönnu íslensku bítlahljómsveitar. Sannast það best á því að þeir eru núna í fyrsta sæti á Tónlista Mbl.  

Robertino

Ítalska undrabarnið sem kom til Íslands 1961 og söng í nokkur skipti fyrir troðfullu húsi í Austurbæjarbíó, var ein vinsælasta og besta söngstjarna sem Íslendingar hafa nokkru sinni þekkt. Plötur hans voru spilaðar gjörsamlega í gegn næstu árin eftir heimsókn hans.Perlur eins og O sole mio, Mama, Torna a Surriento, Santa Lucia og Ave Maria glitruðufegurri en nokkru sinni fyrr úr silfurbarka þess óviðjafnanlega undrabarns. Sonet hefur tekist að útvega leyfi til að gefa út öll bestu lög Robertino á geisladiski. Öll lögin verða stafrænt hljóðjöfnuð (Digitally Remastered). Hefur hvergi verið til sparað og metnaður lagður í, að gera disk þennan eins veglega úr garði, eins og unnt er.

Austurbær hefur þegar hafið annað starfsárið sitt

Ásgeir Óskarson "Stuðmaður" reið á vaðið með útgáfutónleika við útkomu annarrar hljómplötu sinnar "Áfram". Á sviðinu með Ásgeiri mátti sjá marga af bestu hljóðfæraleikurum landsins flytja þessa vel sömdu framúrstefnu rokkmúsík, sem Ásgeir hefur verið að koma saman í hjáverkum undanfarin ár. Um miðjan september mánuð fyllti svo Hörður Torfason salinn með sína árlegu hausttónleika Að þessu sinni kynnti hann efni af glænýrri plötu sinni "Elds saga" sem er fyrsta platan af áformaðri fimm platna seríu um höfuðöflin. Þess má geta að Sonet dreifir diski Ásgeirs Óskarssonar og diskum Harðar Torfasonar.

40 ára starfsafmæli Hljóma

Hljómar frá Keflavík eiga 40 ára starfsafmæli um þessar mundir. Nýr diskur kemur út á sjálfan afmælisdaginn 5. október, en þá verða nákvæmlega 40 ár liðin frá því að Hljómarnir debuteruðu í Krossinum í Njarðvík, laugardaginn 5.október 1963. Við þann atburð má merkja upphaf Bítlaæðisins á Íslandi, fenómen sem skók heiminn um miðjan sjöunda áratuginn. Sonet gefur út þennan nýja disk Hljóma. Veglegir afmælistónleikar verða haldnir í Austrbæ að kvöldi afmælisdagsins 5. október. Hefjast herlegheitin stundvíslega kl.20. og verður tekið upp bæði fyrir sjónvarp (Saga film)  og útvarp (Rás 2)

Elds saga Harðar Torfa

Söngvaskáldið, leikarinn og útvarpsmaðurinn Hörður Torfa gefur út þann 4 sept. geisladisk sem kallast Elds saga og er fyrsti diskurinn í röð fimm geisladiska með söguþræði sem sem byggir meira og minna á lífsreynslu hans. Innihald hvers disks getur þó staðið sem sjálfstæð heild. Það fer allt eftir því hvernig hlustað er. Á Elds sögu eru tólf sungnar sögur sem heita Neistar, Bruni, Sumarsól, Ís og eldur, Neistaflug, Langtíburtistan, Eldberinn, 10 mai, Ekki í mínu nafni, Úlfurinn, Vonir og væntingar og Sáðmenn söngvanna.