Zonet útgáfan lækkar verðið!

Það eru góðar fréttir sem við færum unnendum íslenskrar tónlistar. Zonet útgáfan hefur tekið ákvörðun um að lækka verðið á geisladiskum útgáfunnar niður í 1.999 kr.

Hér er ekki um auglýsingabrellu að ræða, sem verður gengin yfir í næstu viku, heldur verð sem er komið til að vera. Það sem getur breytt er þessu er aðeins óðaverðbólga og/eða skyndilegar breytingar á gengi íslensku krónunnar.

Zonet útgáfan  hefur til þessa dags kappkostað að bjóða landsmönnum góða tónlist með úrvals flytjendum og á því verður engin breyting önnur en sú að nú fá landsmenn vöruna á tombóluprís!