Hljómar eru um þessar mundir í hljóðveri að taka upp nýjan hljómdisk sem stefnt er að komi út í byrjun október. Lokið var við eitt þessara laga Upp með húmorinn þann 25. maí sl. og er það nú komið í spilun á útvarpsstöðvum.
Upp með húmorinn kemur út á safndiski Zonet útgáfunnar Sólargeislar um miðjan júní n.k. Á disknum verða ný lög með, Mannakornum, Hljómum, Pöpum, Ólafi Hauki Símonarsyni, Guitar Islancio, Sonet o.fl.
Lagið Upp með húmorinn prýðir allt sem gott lag þarf að prýða. Grípandi laglína, góður texti og frábærar raddsetningar sem minna á Beach boys á sokkabandsárum þeirra.
Það er Gunnar Þórðarson sem samdi lagið en textinn er eftir Halldór Gunnarsson.