Roberto Loreti, öðru nafni Robertino, fékk afhenta gullplötu í Róm fyrir skömmu. Það var eigandi Zonet útgáfunnar Óttar Felix Hauksson sem færði þessum gullbarka plötuna. Á myndinni frá vinstri: Óttar Felix, Robertino og Pino Marcucci King of Italian melody.
Þar með má segja að leitinni að Robertino hafi formlega lokið. Hún hófst fyrir 3 árum þegar Óttar Felix Hauksson fór til Ítalíu í þeim tilgangi að finna þennan mikla meistara. Fyrir síðustu jól kom út diskurinn Robertino - Það allra besta sem var einn af söluhæstu diskunum á síðasta ári. Í kjölfarið keypti Zonet útgáfan útgáfuréttinn af Robertino á heimsvísu og þessa dagana er verið að leggja lokahöndina á útgáfu í Kína, Finnlandi, Danmörku og víðar.