KK & Maggi á Hótel Borg og í uppsveitum Árnessýslu um verslunarmannahelgina
KK & Maggi Eiríks hafa að undanförnu verið á tónleikafeðalagi í samvinnu við Zonet og Rás 2 um landið og fylgt eftir nýútkominni plötu sinni “Langferðalög”, einni af mest seldu plötum sumarsins. Þeim hefur allstaðar verið firnavel tekið, hvarvetna er húsfyllir og mikil stemming hefur myndast. Þeir félagar krydda flutninginn með skemmtilegum frásögnum í kringum login og fellur það vel í kramið hjá áheyrendum. Fimmtudagskvöldið 2. ágúst halda þeir tónleika á Hótel Borg í Reykjavík og hefjast tónleikarnir kl. 20:30. Rás 2 verður á staðnum og tekur tónleikana upp og mun útvarpa þeim á landsvísu á föstudagskvöldið. Um verslunarmannahelgina verður svo slegið upp tónleikum á alkunnum ferðamannastöðum austan fjalls. Á laugardagskvöldið leika þeir í félagsheimilinu að Flúðum í Hrunamannahreppi kl. 21 og á sunnudaginn verða eftirmiðddagstónleikar á Hótel Geysi í Haukadal og hefjast þeir kl. 15. Miðasala verður við innganginn.