Tríóið Guitar Islancio er 5 ára um þessar mundir og fagna því með gullsölu. Það er einkar athyglisverður árangur sérstaklega þegar horft er til þess að hér er um djassafurð að ræða sem í ofanálag er "instrumental". Frábær árangur!
Þeir félagar hafa komið víða við á þessum fimm árum og leikið út um allan heim, gefið út fjóra diska sem allir hafa hlotið góðar viðtökur.
Guitar Islancio hefur hvívetna hlotið lofsamleg ummæli í blöðum og tímaritum bæði innanlands og utan. Þykir tríóið hafa komið með nýjan tón í tónlistarflóruna með túlkun sinni á íslensku þjóðlögunum sem þeir hafa gjarnan djassað upp og gera að sínum.
Tríóið hefur leikið með heimsfrægum nöfnum á borð við Didier Lockwood, Sylvian Luc, ásamt því að vera tíðir gestir á djasshátíðum í Kanada en þar hefur m.a. verið gefin út diskur með hljómsveitinni.
Guitar Islancio áhlotnaðist sá heiður að vera Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar árin 2000 og 2001.
Þeir léku á IAJE "International Association for Jazz Education" í Toronto fyrr á árinu en það þykir mikil virðing í djassheiminum.
Í tilefni af afmælinu mun Sonet, útgáfufélag Guitar Islancio, afhenda þeim gullplötu vegna sölu á fyrsta disk þeirra félaga.
Það telst til tíðinda þegar djassdiskur selst í meira en fimmþúsund eintökum og eru ekki dæmi um að "instrumental" djassdiskur hafi selst jafnmikið hér á landi.
Tríóið er skipað þeim Birni Thoroddsen, gítarleikara, Gunnari Þórðarsyni, gítarleikara og Jóni Rafnssyni bassaleikara.