Danir falla fyrir Robertino

Robertino - De allre størst hits sem Zonet útgáfan gaf út í Danmörku fyrir stuttu fór beint í 9. sætið á opinbera danska sölulistanum (Den officielle danske hitliste). Núna í jólamánuðinum er Robertino aftur kominn á lista. Diskurinn er í 9. sæti sölulista FDB

Innan vébanda FDB má finna verslanir eins og Kvickly, Super Brugsen, Fakta, Irma og Merlin. Það er því ljóst að Robertino selur vel í Danmörku. Þess má geta að eftir hljómleika sína hér á landi í Austurbæ hélt Robertino tvenna tónleika í Danmörku og var uppselt á þá báða.