Ásgeir Óskarson "Stuðmaður" reið á vaðið með útgáfutónleika við útkomu annarrar hljómplötu sinnar "Áfram". Á sviðinu með Ásgeiri mátti sjá marga af bestu hljóðfæraleikurum landsins flytja þessa vel sömdu framúrstefnu rokkmúsík, sem Ásgeir hefur verið að koma saman í hjáverkum undanfarin ár. Um miðjan september mánuð fyllti svo Hörður Torfason salinn með sína árlegu hausttónleika Að þessu sinni kynnti hann efni af glænýrri plötu sinni "Elds saga" sem er fyrsta platan af áformaðri fimm platna seríu um höfuðöflin. Þess má geta að Sonet dreifir diski Ásgeirs Óskarssonar og diskum Harðar Torfasonar. Stöð2 mætti síðan með vaskan hóp keppenda og starfsmanna og skaut "IDOL" á sviðinu í Austurbæ. Kannski eiga Sigur vegararnir eftir að syngja þarna seinna. Fjölmargt er á döfinni á næstu mánuðum má m.a. nefna að ein vinsælasta sveit yngstu kynslóðarinnar Írafár mun halda áutgáfutónleika sína 28. nóvember í Ausurbæ. Austurbær hefur tekið höndum saman við www.midi.is, um sölu aðgöngumiða á netinu og er það ánægjulegt framfaraspor, sem léttir mjög allri umsjón miðasölu.