Zonet útgáfan hefur gert leyfissamning á 3 plötum Guitar Islancio í Japan. Það er fyrirtækið Allios music í Yokohama sem verður hinn japanski útgefandi. Plöturnar sem um ræðir eru: Guitar Islancio 1, Guitar Islancio 3 og Scandinavian songs sem verður fyrst í röðinni og mun koma út í Japan n.k. vor.
Gutiar Islancio eru um þessar mundir í Peking en þangað héldu þeir frá Sjanghæ þar sem þeir léku við góðan orðstír á 6. listahátíð Sjanghæborgar.