Þriðjudaginn 2. nóvember n.k. spilar hljómsveitin AlasNoAxis í Austurbæ. Stórsveit Nixnoltes hitar upp. Tónlist Alasnoaxis er kannski best skilgreind sem jazz skotin spunamúsík með pönk- rokkáhrifum. Hljóðfæraleikur þeirra sem þarna koma fram getur varla flokkast undir neitt annað en tæra snilld. Miðasala er í 12 Tónum og á midi.is.