Miðasala á The Fall

Miðasala á tónleika The Fall í Austurbæ þann 17. nóvember n.k. hófst föstudaginn 15. október kl. 10 á midi.is og í Austurbæ. Miðaverð er 3200 kr. Miðasala er jöfn og góð.

Á tónleikunum koma einnig fram Vonbrigði og Dr. Gunni. Vonbrigði hafa ekki leikið opinberlega í yfir 20 ár þannig að hér er um einstæðan viðburð að ræða.