Góðir hljómleikar

Blonde Redhead spilaði fyrir fullu húsi í tvígang í Austurbæ sl. helgi. Það var samróma álit flestra sem mættu að hér hafi farið eitt almagnaðasta hljómleikaband sem sótt hefur landann heim. Upphitunarböndin, kombó Skúla Sverrissonar og Slowblow þóttu einnig hafa sýnt hreint frábæra takta.

Í dómum um tónleikana var alls staðar tekið fram hversu góður hljómleikasalur Austurbær er. Næstu misserin ættu menn ekki að fara varhluta af tónlist í Austurbæ ? það er eitt sem víst er: Næst á dagskrá Lisa Ekdahl!