Frábærir dómar!

Tónleikar Grafík og Harðar Torfasonar í Austurbæ tókust frábærlega. Hljómur og umgjörð var með ágætum og listamennirnir í fantastuði. Í Morgunblaðinu 13. september birtist dómur um tónleika Grafík þar sem Austurbær fær lofsamlega umfjöllun...

Allt var eins og það átti að vera, samspilið með ágætum þrátt fyrir örfáa hnökra og ekki skemmdi fyrir frábær hljómur hússins. Austurbæjarbíó er að mínu mati besti tónleikasalur Íslands fyrir miðstærðartónleika og hlakka ég mjög til að sjá hina frábæru hljómsveit Blonde Redhead leika þar seinna í þessum mánuði. Ég satt að segja furða mig á þeirri þvermóðsku sem hefur einkennt umræðuna um þetta frábæra fjöllistahús og ég hlakka til að einhver fjársterkur aðili höggvi á hnútinn og komi málefnum þess á hreint, bæði núverandi eigendum þess og listalífi Íslendinga til góða.